(Nóvember 2011)

Fullt nafn:
Sara Rún Hinriksdóttir

Aldur: 15 ára, 14 ágúst

Félag: Keflavík

Hjúskaparstaða: Á lausu

Nám/Atvinna:10.bekkur, Holtaskóli Keflavík

Happatala:14

Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? Byrjaði 7 ára í Keflavík

Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Helena Sverrisdóttir

Með hvaða félögum hefur þú leikið? Keflavík

Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna?
Elvar Már Friðriksson, Birna ,,gamla” Valgarðsdóttir og Margrét Kara.

Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna?
Jaleesa Butler, er ekki viss með karlana.

Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir?
Hún er helvíti góð hún Bríet Sif í Keflavík

Hver var fyrsti þjálfarinn þinn?
Margrét Sturlaugsdóttir

Besti þjálfarinn á Íslandi í dag?
Margir svo góðir, get ekki gert upp á milli.

Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn?
Kobe Bryant

Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag?
Dirk Nowitzki

Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik?
Nei

Hvert er þitt uppáhalds lið í Evrópuboltanum?
Barcelona

Sætasti sigurinn á ferlinum?
Úrslitin í Íslandsmótin 2011, með unglingaflokki á móti Snæfell

Sárasti ósigurinn?
Dettur ekkert í hug

Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta?  
Fótbolti

Ef þú mættir vera einhver annar/önnur en þú sjálf(ur) í einn dag, hver myndir þú vera?
Jordan

Uppáhalds:
kvikmynd: Bridemaids er góð
leikari: Ed Westwick og Eddie Murphy
bók: fésbókin
frasi: ,,kláraðu mig ekki’’
matur: Grillaðar kjúklingabringur með sætum kartöflum, la pabbi
matsölustaður: Cheescake Factory
lag: Get ekki valið eitt
hljómsveit: Engin hljómsveit í uppáhaldi.
staður á Íslandi: Kefcity
staður erlendis: Tyrkland og New York
lið í NBA: Boston Celtics
lið í enska boltanum: Manchester United
hátíðardagur: Aðfangadagur
alþingismaður: Er lítið inn í stjórnmálum
alþingiskona: Er lítið inn í stjórnmálum
heimasíður: karfan.is og facebook

Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki?
Hugsa um hlutverk mitt í leiknum.

Hvernig er síðasta máltíðin fyrir leik?
Pasta, boost og banani

Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum?
Báðum

Furðulegasti liðsfélaginn?
Bríet Sif Hinriksdóttir og Sandra Lind Þrastadóttir, þær eru eðal.

Besti dómarinn í IE-deildinni?
Alli fínir.

Erfiðasti andstæðingurinn?
Hinn helmingurinn, Bríet Sif.

Þín ráð til ungra leikmanna?
Hafðu trú á sjálfum þér.

Spurning frá Martin Hermanssyni sem var síðast í 1 á 1:
Hvernig spilar maður vörn á Skarphéðinn Frey Ingason?

Ég veit það ekki, pressa á hann og öskrar á hann í leiðinni.

Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1?
Með hverju færðu þér á pulsu? 

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia