
Fullt nafn: Ólafur Ólafsson
Aldur: 19 verð 20 í nóvember
Félag: Grindavík
Nám/Atvinna: Fjölbrautarskóli Suðurnesja
Happatala:14
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? Ég byrjaði ungur, held að ég hafi verið 4-5 ára þegar ég byrjaði að sofa með boltann bókstaflega.
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Bræður mínir Jóhann og Þorleifur, það er hæpið að þeir séu fyrirmyndir núna, annar er hættur og hinn allaf meiddur.
Með hvaða félögum hefur þú leikið? Grindavík og Eisbären Bremerhaven
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Pavel í karla og Helga Hallgríms í kvenna. 1 deildin, ég gef mínum manni Baldri Þór Ragnarssyni þennan heiður.
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Dre Smith og Ryan Pattinela í karla og erlendi leikmaðurinn í Keflavíkur-kvennaliðinu (Jaqueline Adamshick). Veit ekkert um 1. deildina.
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Þeir eru nokkrir úr 94 árganginum úr liðum frá Grindavík, Njarðvík og KR.
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Ólafur Þór Jóhannsson AKA Óli Jó var sá fyrsti, en undir merkjum Grindavíkur var það Gummi Braga minnir mig.
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Helgi Jónas Guðfinnsson
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? D-Wade
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? Kobe og LeBron
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Já ég fór á New York vs Minnesota Timberwolves árið 2000, fékk það í afmælisgjöf frá forledrum mínum því við vorum stödd í New York og sáum stjörnur á borð við Kevin Garnett, Allan Houston svo einhverjir séu nefndir.
Hvert er þitt uppáhalds lið í Evrópuboltanum? Barcelona
Sætasti sigurinn á ferlinum? Hef aldrei unnið stóran titil á ferlinum, ekki í yngriflokkum eða neitt. Ætli það hafi ekki verið í fyrra þegar við unnum Snæfell í fyrra vetur í deildinni með einu stigi, það var gaman.
Sárasti ósigurinn? Bikarúrslitin í fyrra.
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Fótbolti.
Uppáhalds:
kvikmynd: Er hrifinn af hasar og spennu myndum.
leikari: Al Pacino
leikkona: Sandra Bullock.
bók: Allar eftir Arnald Indriðason.
frasi:Everybody Loves Everybody
matur: Jólamaturinn klikkar seint
matsölustaður: Grillið á hótel Sögu
lag: Allir Eru Að Fá Sér með Ragga Bjarna fremstan í flokki.
hljómsveit: Dikta
staður á Íslandi: Fljótin fyrir norðan fallegasti staður á Íslandi.
staður erlendis: Þýskaland,Spánn og Ítalía
lið í NBA: Miami og Boston fyrir pabba.
lið í enska boltanum: Liverpool YNWA!
hátíðardagur: Jólin
alþingismaður: Hvað er það ?
alþingiskona: Hvað er það ?
heimasíða: Facebook, Karfan og Fótbolti .net
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Reyni að fara með sömu rútínuna fer í Nettó á salatbarinn og hugsa um leikinn þegar líður á daginn hvað ég ætla að gera til að hjálpa liðinu mínu að vinna. Svo er mér óskað góðs gengis af ákveðinni manneskju sem kveikir allaf í mér og tala nú ekki um þegar þessi manneskja mætir á leiki, þá gegur mér allaf vel !
Hvernig er síðasta máltíðin fyrir leik? Það er einhver góður réttur frá móður minni.
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Báðum, samt meira af tapleikjum þá sérðu hvað þú gerir rétt og hvað rangt.
Furðulegasti liðsfélaginn? Þorsteinn Finnbogason og Ármann Vilbergsson eru stórfurðulegir, samt er Þosteinn sá furðulegasti og klikkaðisti liðsfélagi sem er hægt að fá !
Besti dómarinn í IE-deildinni? Kristinn Óskarsson
Erfiðasti andstæðingurinn? Ég sjálfur.
Þín ráð til ungra leikmanna? Æfa meira en aðrir.
Spurning frá Írisi Sverrisdóttur sem var síðast í 1 á 1:
Hefurðu eitthvern tímann tapað fyrir stelpu í 1 á 1, ef já þá á móti hverri? Það er ekki að ástæðulausu að ég sé á eftir henni Írisi, hún vann mig einu sinni eftir langa sigurgöngu mína þegar við vorum krakkar. Þegar hún var búin að vinna þá hljóp hún í hvert einasta hús í nágrenninu og sagðist hafa unnið mig. Ég vildi ekkert allaf vera vinna hana því þá hefði hún aldrei náð eins langt og hún hefur náð. Svo hef ég tapað fyrir annari manneskju sem verður ekki nafngreind en hún gerði það sama sagði öllum frá því en í þeim leik mátti ég ekki blokka eða spila vörn en samt vann hún mig, það var einn skrítnasti og skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað við stelpu og sú stelpa veit afhverju það er og ástæðuna afhvejru mér finnst það : )
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1? Veistu hvering hægt er að koma Þorleifi Ólafssyni allmennilega í gang?
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Könnun
Mynd af handahófi