(Nóvember 2011)
 
Fullt nafn: Martin Hermannsson
 
Aldur: 17 ára, 16.september
 
Félag: KR
 
Hjúskaparstaða: Lausu

Nám/Atvinna: Verzlunarskóli Íslands
 
Happatala: 15
 
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? Ætli maður hafi ekki verið svona 6-7 ára hjá Björgvini Finnsyni í KR
 
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Verð að gefa pabba heiðurinn á því (Hermann Hauksson)
 
Með hvaða félögum hefur þú leikið? KR
 
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna? Erfitt að gera upp á milli. Spyrjum í lok tímabils.
 
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna? Ætla að gefa Darrin Govens í Þór Þorlákshöfn og Jaleesu Butler í Keflavík þennan heiður.
 
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Elvar Már Friðriksson og Arnór Hermannsson
 
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Hinn eini sanni Björgvin Finnsson
 
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Benedikt Guðmundsson, Ingi Þór Steinþórsson, Einar Árni Jóhannsson, Hrafn Kristjánsson og Finnur Freyr Stefánsson get ekki gert upp á milli þeirra.
 
Uppáhalds NBA leikmaðurinn þinn?  Aðeins einn Kobe Bryant
 
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? Dirk Nowitzki MVP
 
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nei, en hef aftur á móti farið á WNBA leik !

Hvert er þitt uppáhalds lið í Evrópuboltanum? KR !
 
Sætasti sigurinn á ferlinum? Úrslitaleikurinn á móti Svíþjóð á Norðurlandamótinu 2010
 
Sárasti ósigurinn? Ætli það hafi ekki verið bikarleikurinn í 11.flokki og úrslitaleikurinn á Íslandsmótinu í drengjaflokki í fyrra, bæði gegn Njarðvík.
 
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Fótbolti og Golf.
 
Ef þú mættir vera einhver annar/önnur en þú sjálf(ur) í einn dag, hver myndir þú vera? Barack Obama
 
Uppáhalds:
kvikmynd: Glory road  
leikari: Steve Carell
leikkona: Cameron Diaz
bók: Mýrin
frasi: Let’s get Tropical
matur: Lambasteikin hennar ömmu.
matsölustaður: Hamborgarabúllan
lag: Get ekki valið eitthvað eitt !
hljómsveit: Margar
staður á Íslandi: Vesturbærinn klikkar ekki !
staður erlendis: Orlando,Boston
lið í NBA: L.A Lakers
lið í enska boltanum: Liverpool  
hátíðardagur: Aðfangadagur
alþingismaður: ?
alþingiskona: ?
heimasíður: Karfan.is og Facebook
 
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Fer í sokka, klæði mig í búningin, fer svo í skóna, því næst í upphitunartreyju og út á völl að hita upp !

Hvernig er síðasta máltíðin fyrir leik?
Misjafnt, ávextir og pasta er vinsælt.
 
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Báðum, í tapleikjum sérðu hvað þú gerðir vitlaust en í sigurleikjum sérðu hvað þú gerðir rétt.
 
Furðulegasti liðsfélaginn? Skarphéðinn Freyr Ingason og Ágúst Angantýsson
 
Besti dómarinn í IE-deildinni? Sigmundur Már Herbertsson
 
Erfiðasti andstæðingurinn? Ægir Þór Steinarsson
 
Þín ráð til ungra leikmanna?  ”hard work beats talent when talent doesn't work hard”
 
Spurning frá Jóni Ólafi Jónssyni sem var síðast í 1 á 1:
Kanntu að leysa Rúbiks kubbinn?
Nei, hef ekki þolinmæði í það!
 
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1? Hvernig spilar maður vörn á Skarphéðinn Frey Ingason ?  
 

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia