Fullt Nafn: Guðmundur Jónsson 
 
Aldur: 25
 
Félag: Njarðvík
 
Hjúskaparstaða: í sambúð
 
Nám/Atvinna: smiður/ atvinnulaus
 
Happatala: 6
 
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? 5-6 ára í njarðvík
 
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Teitur Örlygsson
 
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Maggi Gunn, Margrét Kara og ég fylgist ekki með 1. deildinni ;)
 
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Justin Shouse og Shantrell Moss í Njarðvik.
 
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Ægir Þór Steinarsson í Fjölni
 
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Júlíus Valgeirsson
 
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Siggi Ingimundar
 
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? Jordan
 
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? LeBron James
 
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Já, þegar ég var 7 ára, Philadelphia vs. Cleveland. Væri samt alveg til í að fara að endurnýja það.
 
Hvert er þitt uppáhalds lið í Evrópuboltanum? Barcelona ég þori ekki að segja Liverpool.
 
Sætasti sigurinn á ferlinum? Þegar við urðum meistarar í Borgarnesi 2006.
 
Sárasti ósigurinn? Þegar við töpuðum á móti Kef í Keflavík í síðasta leiknum á tímabilinu og hann var uppá deildarmeistaratittilinn. Éina bikarinn sem vantar í safnið hjá manni.
 
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Póker

Með hvaða félögum hefur þú leikið? Njarðvík og Þór Akureyri
 
Uppáhalds:
kvikmynd: Hangover
leikari: Feiti í Hangover, veit ekki hvað hann heitir
leikkona: Megan Fox
bók: Fréttablaðið
matur: allt hjá konunni og samlokan í grillinu
matsölustaður: Villa bar í kef
lag: Man ekki hvað það heitir
staður á Íslandi: Akureyri
staður erlendis: Ítalía
lið í NBA: Cleveland
lið í enska boltanum: Ætli maður verði ekki að segja Liverpool
hátíðardagur: laugardagur
alþingismaður: allt sama skítapakkið
alþingiskona: kanski aðeins fínna skítapakk
 
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Ég reyni að borða vel og fara snemma að sofa og ég reyni að spila leikinn í hausnum. Enn oftast klikkar eitthvað ;)
 
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Tapleikjunum, þá sér maður frekar hvað fór úrskeiðis.
 
Furðulegasti liðsfélaginn? Dóri Karls, en það var þá, núna er það stóri maður í liðinu.
 
Besti dómarinn í IE-deildinni? Jón Guðmundsson
 
Erfiðasti andstæðingurinn? Justin Shouse
 
Þín ráð til ungra leikmanna? Ef þeir ætla að ná langt þá þýðir ekki bara hanga og gera ekki neitt og halda að þetta komi að sjálfu sér. Hjá flestum félögum eru aðstæður og annað orðið svo gott að þú getur verið að æfa þig allan liðlangan daginn. Bara eitt gamalt og gott, æfingin skapar meistarann.
 
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1?
Hvernig fannst þér íslenska krulluliðið standa sig á einhverju móti sem það var á um daginn? 
 
Tölfræði safn KKÍ

Könnun

Verða Miami Heat NBA meistarar á næstu leiktíð?

Nei

 

Mynd af handahófi