
Fullt nafn: Friðrik Hreinn Hreinsson
Aldur: 29
Félag: Tindastóll
Hjúskaparstaða: Í sambúð.
Nám/Atvinna: Lögreglumaður. Er líka menntaður íþróttafræðingur og starfa sem einkaþjálfari því tengdu.
Happatala: 9
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? Held ég hafi verið 7 ára þegar ég fór á mína fyrstu æfingu á Sauðárkróki undir handleiðslu Guðmundar Jenssonar.
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Ég ólst upp við að horfa á nokkra snillinga eins og ”gamla sólheimahundinn” Kára Marísson, Val Ingimundarson, Pál Kolbeinsson, Kristinn Friðriksson o.fl sem maður leit upp til sem polli þegar maður var að stíga sín fyrstu skref í körfunni. Þess má geta að seinna þjálfuðu þessir menn mig og reyndu að kenna mér sitthvað í íþróttinni.
Með hvaða félögum hefur þú leikið? Tindastól, Breiðablik, Hamar og hálft tímabil með Ármanni.
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Margir frambærilegir leikmenn sem við eigum en ég ætla að segja KR-ingarnir Pavel Ermolinski og Margrét Kara Sturludóttir.
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Hayward Fain og Jaleesa Butler. Fylgist ekki nógu mikið með 1. deildinni.
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Ægir Þór Steinarsson og Ragnar Nathanaelsson
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Guðmundur Jensson
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Borche Ilievski
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? Clyde Drexler og Michael Jordan. Í dag er það Lebron James.
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? Erfitt að gera upp á milli Kobe og LeBron. Báðir ótrúlegir leikmenn en LeBron meiri íþróttamaður. En Kobe hefur skilað mörgum NBA titlum í hús, þannig að ég segi Kobe.
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nei á það ennþá eftir. Ég fer á leik við fyrsta tækifæri.
Hvert er þitt uppáhalds lið í Evrópuboltanum? Barcelona.
Sætasti sigurinn á ferlinum? Margir sætir sigrar í gegnum tíðina. Ætli ég verði ekki að segja úrslitaleikur við Keflavík í fyrirtækjabikarnum árið 2000 sem þá hét Eggjabikarinn. Þá var ég 19 ára og sá leikur skilaði dollu í hús. Í minningunni er það sérstaklega eftirminnilegur sigur.
Sárasti ósigurinn? Ég reyni að gleyma tapleikjum sem allra fyrst. Ég einfaldlega þoli ekki að tapa.
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Fótbolti. Hef einnig mikinn áhuga á líkamsrækt og öllu sem tengist þeim geira.
Uppáhalds:
kvikmynd: Ógrynni af góðum bíómyndum. Engin ein sérstök í uppáhaldi.
leikari: Al Pacino, Daniel Day Lewis, Jack Nicholson, Robert De Niro, Edward Norton, Heath Ledger, Danzel Washington svo einhverjir séu nefndir. Að ógleymdum sprellurunum Jim Carrey og Will Farrell.
leikkona: Jessica Alba, Megan Fox
bók: Það hefur ekki gefist mikill tími til að lesa annað en skólabækurnar undanfarin ár. Síðast las ég ævisögu Lance Armstrong “þetta snýst ekki um hjólið” hún var fín.
frasi: “Sumir vilja að það gerist. Aðrir vona að það gerist. Fáir láta það gerast”
matur: Kjúklingur.
matsölustaður: Ólafshús.
lag: Það sem kemur mér í gírinn hverju sinni. Fer eftir því hvað ég er að gera þá stundina.
hljómsveit: Mjög víður tónlistarsmekkur og fer eftir stað og stund. Dikta og Sigurrós eru þéttir þessa dagana.
staður á Íslandi: Skagafjörður.
staður erlendis: Spánn.
lið í NBA: Ég var alltaf mikill Trail Blazers aðdáandi þegar ég var gutti og fylgdist sem mest með NBA. Held mig við þá.
lið í enska boltanum: Liverpool.
hátíðardagur: Jólin.
alþingismaður: Gunnar Bragi Sveinsson.
alþingiskona: Pass.
heimasíða: Karfan.is
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Reyni að borða vel af góðum kolvetnum daginn fyrir leik, fá góða hvíld og 6-8 klst nætursvefn aðfaranótt leikdags. Á leikdegi slappa ég af, borða vel og pæli í andstæðingnum og hlutverki mínu til að hjálpa liðinu að vinna leikinn.
Hvernig er síðasta máltíðin fyrir leik? Fyrir útileiki fáum við strákarnir í liðinu kjötsúpu í Staðarskóla. Fyrir heimaleiki býður Hófí Sveins, stjórnarmeðlimur okkur í léttan mat á leikdag. Takk fyrir mig.
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Hægt að læra heilmikið af hvorutveggja. Það fer eftir því hvernig þjálfari og leikmenn vinna með sigur/tapleiki. Oft getur góður sigurleikur aukið sjálfstraust og kallað fram það besta í liðinu í framhaldinu. En það getur gleymst að fara yfir hluti sem gengu illa þó svo að sigur hafi unnist. Í tapleikjum sést oftast betur hvað miður fer og hvað þarf að laga. Í slæmum tilfellum geta tapleikir dregið úr sjálfstrausti og leikgleði manna, en það fer eftir karakter og liðsanda hvernig menn tækla það. Ég myndi segja að tapleikir kenni mönnum meiri lexíu.
Furðulegasti liðsfélaginn? Einar Bjarni Einarsson.
Besti dómarinn í IE-deildinni? Kristinn Óskarsson. Sigmundur Herbertsson
Erfiðasti andstæðingurinn? Ég sjálfur. Klassískt.
Þín ráð til ungra leikmanna? Setja sér markmið sem þeir eru staðráðnir í að ná. Hugsa vel um líkamann og heilsuna. Og fyrst og fremst æfa meira en hinir. Það er aukaæfingin sem skapar meistarann.
Spurning frá Ólafi Ólafssyni sem var síðast í 1 á 1:
Veistu hvering hægt er að koma Þorleifi Ólafssyni almennilega í gang? Mér skilst að Þorleifur sé búinn að vera að glíma við erfið meiðsli. Helgi Jónas þjálfari Grindavíkur og einkaþjálfari býr yfir mikilli visku og þekkingu þegar kemur að þjálfun íþróttmanna og vonandi að hann geti komið Þorleifi á gott ról. Og vonandi fyrir Grindvíkinga að Þorleifur komist í sitt besta stand.
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1? Hver verður næsti stjóri Liverpool eftir að Roy Hodgson verður látinn taka pokann sinn?
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Könnun
Mynd af handahófi