
Fullt nafn: Fannar Freyr Helgason
Aldur: 26
Félag: Stjarnan
Hjúskaparstaða: Í sambúð
Nám/Atvinna: Er að ljúka námi í ferðamálafræði
Happatala: 15
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? Ég byrjaði 9 ára á Akranesi
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Ætli það hafi ekki verið Steve Greyer
Með hvaða félögum hefur þú leikið? ÍA, ÍR, Stjarnan
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Það eru skötuhjúin Ragna Margrét og Pavel Ermolinskji. Í fyrstu deild karla var það Ómar Örn Helgason leikmaður ÍA
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Justin Shouse, Heather Ezell hjá stelpunum.
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Haukur Helgi Pálsson
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Ætli það hafi ekki verið Sigurður Elvar Þórólfsson blaðamaður á Morgunblaðinu
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Teitur Örlygsson
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? Tim Duncan
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? LeBron James
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nei
Hvert er þitt uppáhalds lið í Evrópuboltanum? CSKA Moskva
Sætasti sigurinn á ferlinum? Klárlega Bikarúrslitaleikurinn í fyrra á móti KR
Sárasti ósigurinn? Tapið í þriðja leiknum á móti Njarðvík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Fótbolti
Uppáhalds:
kvikmynd: Ancorman
leikari: Will Ferrel
leikkona: hef ekki hugmynd
bók: flest eftir Arnald Indriða
matur: Nautalund
matsölustaður: Tapas Barinn
lag: Núna er það Winner með Jamie Fox og JT
hljómsveit: Bæjarins Bestu með K Joð í broddi fylkingar
staður á Íslandi: Ós í Hvalfjarðarsveit
staður erlendis: Torrevieja á Spáni
lið í NBA: Spurs
lið í enska boltanum: Liverpool
hátíðardagur: Jólin
heimasíða: Karfan.is, Hlad.is, Veidi.is
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Ég vakna um 9 leytið. Fæ mér síðan einhvern góðan morgunnmat, kl 14 fer ég á Serrano og fæ mér burrito. Eftir það reyni ég að slappa af fram að leik
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Tapleikjum
Furðulegasti liðsfélaginn? Birgir Björn Pétursson og Jovan Zradervski deila þeim titli
Besti dómarinn í IE-deildinni? Simmi og Kiddi Óskars (Sigmundur Már Herbertsson og Kristinn Óskarsson)
Erfiðasti andstæðingurinn? Hlynur Bæringsson
Þín ráð til ungra leikmanna? Verið dugleg að æfa og taka aukaæfingar
(Spurning frá Emil Þór Jóhannssyni sem var síðast í 1 á 1)
Hvort var Biggi Mikk þekktur fyrir að driva baseline eða miðju?
Mig minnir að Bigga Mikk hafi þótt betra að fara baseline
Mig minnir að Bigga Mikk hafi þótt betra að fara baseline
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1?
Hvað þýðir Kaldaskítur á sjóaramáli?
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Könnun
Mynd af handahófi