spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaYfirgefur lið Tindastóls

Yfirgefur lið Tindastóls

Callum Lawson mun ekki leika með Tindastóli á komandi leiktíð í Bónusdeild karla. Staðfestir leikmaðurinn þetta á samfélagsmiðlum nú um helgina.

Callum er 28 ára framherji sem fyrst kom til Íslands til að leika fyrir Keflavík árið 2020, en síðan þá hefur hann ásamt þeim leikið fyrir Þór, Val og nú síðast Tindastól. Árin 2021 og 2022 var hann mikilvægur leikmaður í Íslandsmeistaraliðum Þórs og síðan Vals. Fyrir síðustu leiktíð samdi hann við Tindastól, en með þeim fór hann í úrslitaleik bikarkeppninnar og átta liða úrslit úrslitakeppninnar.

Ekki tekur leikmaðurinn fram hvert förinni skuli heitið, en í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þakkar hann fyrir stuðninginn sem hann fékk með Tindastóli á síðustu leiktíð og segist hann ævinlega þakklátur.

Fréttir
- Auglýsing -