Borche Ilievski og Fjölnir hafa komist að samkomulagi um starfslok þjálfarans hjá félaginu. Tilkynnir félagið þetta í fréttatilkynningu rétt í þessu.
Borche kom til Fjölnis frá ÍR árið 2022 og hefur síðan ekki aðeins verið með meistaraflokk karla hjá félaginu, heldur hefur hann einnig unnið með yngri flokkum félagsins. Borche á að baki gífurlega langan feril sem þjálfari, en ásamt því að hafa þjálfað félög í heimalandinu Makedóníu, hefur hann þjálfað ÍR Tindastól, Bolungarvík, KFÍ, Fjölni og Breiðablik á Íslandi.
Tilkynning Fjölnis:
Fjölnir Karfa og Borche Ilievski hafa komist að samkomulagi um að hann hætti störfum sem þjálfari meistaraflokks karla og 10. flokks drengja. Borche hefur unnið gríðarlega mikilvægt starf fyrir félagið á þeim tíma sem hann hefur starfað hjá okkur og hefur skilað miklum árangri bæði innan vallar sem utan.
Undir stjórn Borche hefur meistaraflokkur karla staðið sig með prýði, náð góðum árangri í deildarkeppni og verið samkeppnishæfur í öllum leikjum. Þjálfun hans hefur einnig skilað sér í frábærri frammistöðu leikmanna 10. flokks drengja, þar sem hann hefur lagt áherslu á að efla leikskilning, aga og liðsandann.
Við hjá Fjölni erum Borche innilega þakklát fyrir hans ómetanlega framlag til félagsins. Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni, bæði á persónulegum og faglegum vettvangi.
Fjölnir Karfa mun halda áfram að byggja á þeim grunni sem Borche hefur lagt, og stefna á áframhaldandi vöxt og framfarir í körfuboltanum.