Skotþjálfarinn Dave Hopla er væntanlegur til landsins á næstu dögum þar sem hann verður með æfingar Origo-Höll Valsmana að Hlíðarenda.
Dave Hopla hefur þjálfað bestu leikmenn heims á borð við Michael Jordan, auk annarra leikmanna í NBA, WNBA, háskólaboltanum og annarra. Hopla er sérstakur skotþjálfari og er þekktur fyrir fyrirlestra sína þar sem hann klikkar varla úr skoti.
Boðið uppá tækifæri að æfa með Dave Hopla á sérstöku námskeiði í næstu viku. Námskeiðið er hugsað fyrir stelpur og stráka á aldrinum 11 ára og eldri. Einungis sextán einstaklingar komast að í hvert námskeið og seldist upp síðast þegar upp á aðeins nokkrum klukkutímum. Reynslu miklir þjálfara á borð við Ágúst Björgvinsson og Finnur Freyr Stefánsson munu einnig þjálfa á námskeiðinu.
Þrjú námskeiðið verða haldin í Origo-höllinni að Hlíðarenda. Skráning fer fram á [email protected]
Námskeið 1: 15 ára og eldri Fimmtudag 1.sep kl. 19:00-21:30
Námskeið 2: 14-16 ára, Föstudagur 2.sep kl. 19:00-21:30
Námskeið 3: 13 ára og yngri, Laugadagur 3.sep kl. 10:00-12:30
Origo-Höll Vals að Hlíðarenda
Verð 14.900- kr.
Skráning þarf að koma fram á hvaða námskeið er skráð [email protected]