Nýliðar Njarðvíkur hafa tryggt sér sæti í úrslitum Subwaydeildar kvenna með 3-1 sigri á Fjölni í undanúrslitum. Fjórði leikur liðanna fór fram í Ljónagryfjunni í kvöld þar sem Njarðvík vann 64-58. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim síðari voru Njarðvíkingar mun sterkari! Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2012 sem Njarðvík tekur þátt í úrslitum deildarinnar en það ár varð kvennalið Njarðvíkur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Njarðvík FB spjallaði við Vilborgu Jónsdóttur leikmann Njarðvíkur eftir leik í Ljónagryfjunni.