Víkurfréttir hafa sett á vefsíðu sína nýjan íþróttaþátt sem að mestu leiti fjallar um körfubolta.
Í þættinum er lokahófi KKÍ gerð góð skil. Sýnt er frá hófinu og sagt frá helstu viðurkenningum sem veittar voru þar.
Í þættinum er einnig skemmtileg umfjöllun um leik sem kvennalið Keflavíkur lék við stjórn Keflavíkur.