Lokahóf KKÍ fyrir nýafstaðið 2023-24 tímabil fór fram í Laugardalshöllinni í dag. Veitt voru verðlaun fyrir efstu tvær deildir karla og kvenna í nokkrum flokkum. Þá voru sjálfboðaliðar Breiðabliks og Grindavíkur heiðraðir fyrir störf sín á tímabilinu og Sigmundur Már Herbertsson fékk verðlaun sem besti dómari ársins.
Besti leikmaður fyrstu deildar karla var valinn Viktor Máni Steffensen leikmaður Fjölnis. Karfan ræddi við hann rétt eftir að hann tók við verðlaununum.
Mynd / KKÍ