Garðbæingurinn Viktor Jónas Lúðvíksson samdi síðastliðið sumar við Munster í þýsku b deildinni, en hann hafði verið á mála hjá Stjörnunni upp yngri flokka og með meistaraflokki þeirra á síðasta tímabili. Viktor er 17 ára síðan nú í sumar og því ekki að ætla að hann myndi ganga beint inn í meistaraflokk Munster, en hann hefur leikið með ungmennaliði, undir 19 ára, í vetur.
Með ungmennaliðinu hefur Viktor náð að vera einn af lykilmönnum þeirra á tímabilinu. Liðið er sem stendur í 2. sæti undir 19 ára deildarinnar með 12 stig, tveimur sigurleikjum fyrir neðan Young Rasta Dragons sem eru í efsta sætinu.
Munster náðu þó í fyrsta skipti að vinna toppliðið nú fyrr í dag, 103-90, en þar var Viktor allt í öllu hjá Munster, með 33 stig, 9 fráköst, 6 stoðsendingar og stolinn bolta á tæpum 38 mínútum spiluðum.