Undir 18 ára drengjalið Ísland laut í lægra haldi gegn Danmörku í öðrum leik sínum á Norðurlandamótinu í Södertalje í dag, 103-94. Liðið hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu, en næst eiga þeir leik á morgun miðvikudag gegn heimamönnum í Svíþjóð.
Karfan spjallaði við Viktor Jónas Lúðvíksson leikmann Íslands eftir leik í Södertalje.