Undir 16 ára landslið drengja vann Ungverjaland fyrr í dag í B-deild Evrópumótsins, 63-74. Ísland leikur í C-riðli mótsins og er með tvo sigra og eitt tap.
Íslenska liðið fær frídag á morgun en á mánudag mætir liðið Búlgaríu í fjórða leiknum á mótinu. Búlgaría líkt og Ísland er með tvo sigra eftir þrjá leiki Leikurinn hefst kl 19:00 að Íslenskum tíma og verður sýndur beint.
Fréttaritari Körfunnar í Bosníu spjallaði við leikmann liðsins Viktor Mána Steffensen eftir að leik lauk í Sarajevo.