Pálína Gunnlaugsdóttir og Ágúst Björgvinsson mættu í viðtal hjá okkur hér á Karfan eftir oddaleik Keflavíkur og Vals í gærkvöldi. Ágúst að vonum svekktur með úrslitin og taldi það hafa verið stóran bita að missa Kristrúnu útaf á ögurstundu með 5 villur. Tónninn í Pálínu var annar eins og gefur að skilja. Pálína talaði um að þjálfarinn hafi sagt þeim að vera skynsamar en á sama tíma líka smá töffarar.