Haukar lögðu Hött í kvöld með minnsta mun mögulegum, 90-89, í toppslag fyrstu deildar karla.
Eftir leikinn eru Haukar einir í efsta sætinu með 16 stig á meðan að Höttur er í öðru sætinu með 14, en Höttur á leik til góða á Hauka.
Karfan spjallaði við Viðar Örn Hafsteinsson þjálfara Hattar eftir leik í Ólafssal.