Strákarnir í U-16 sem keppa á Norðurlandamótinu í Kisakallio töpuðu fjórða leiknum í röð, gegn Dönum í þetta skiptið. Eftir fínan fyrri hálfleik fór spilamennskan að dala og það endaði einsog áður hefur komið fram.
Haukur Steinn Pétursson spjallaði við Körfuna eftir leikinn. Haukur var með fjögur stig úr tveimur tilraunum (100% nýting), tvö fráköst og einn stolinn bolta.