Vestri lagði Hamar í kvöld í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna í fyrstu deild karla.
Fyrsta leik seríunnar vann Hamar á heimavelli í Hveragerði áður en Vestri jafnaði einvígið í leik tvö á Ísafirði.
Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki mun fylgja deildarmeisturum Breiðabliks upp í efstu deild á næsta tímabili.
Fjórði leikur liðanna er komandi föstudag 11. júní á Ísafirði
Úrslit kvöldsins
Fyrsta deild karla:
Vestir leiðir einvígið 2-1