Einn besti leikmaður Subway deildar karla á nýafstöðnu tímabili DeAndre Kane hefur framlengt samningi sínum við Grindavík fyrir komandi leiktíð. Fregnirnar eru staðfestar af vefmiðlinum Vísi.is, en hann mun hafa skrifað undir nýjan samning á lokahófi félagsins fyrr í kvöld.
DeAndre er 34 ára gamall bandarísk-ungverskur framherji sem kom til liðsins fyrir áramót og var ein helsta ástæða þess að liðið fór alla leið í úrslit, þar sem þeir lutu í lægra haldi gegn Val í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn fyrr í vikunni.