Laugardaginn 26. ágúst – afmælisdegi Gústa – fór fram 3 á 3 Götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa við Glerárskóla á Akureyri. Mótið var haldið í tengslum við Akureyrarvöku.
Mótið heppnaðist vel og sjálf forsetahjónin kíktu við, blönduðu geði við viðstadda og tóku nokkur skot. Veðrið lék við keppendur lengst af en seinnipartinn þurfti að færa mótið inn í íþróttahús þar sem það fór að rigna.
Fjórtán lið voru skráð til leiks og var keppt fimm flokkum: 13 ára og yngri (kk og kvk), 15 ára og yngri, 25 ára og eldri og opnum flokki. Fullt af áhorfendum lagði leið sína á völlinn, Dj Jon Faerber þeytti skífum og hélt uppi dúndrandi körfuboltastemningu auk þess sem heitt var á grillinu.
Auk verðlauna í hverjum flokki fyrir sig voru veittar viðurkenningar í anda Gústa:
Sigurvegarar í flokki 15 ára og yngri karla: DMD
Sigurvegarar í flokki 25 ára og eldri karla: Kaffikannan
Sigurvegarar í opnum flokki: Injury list
Viðurkenningar fyrir U15, 25+ og opinn flokk:
Peysan (flottasta liðið): Barbieland FC
Gústinn (háttvísiverðlaun): Hjálmar
Boston (flottustu tilþrif) Sigmundur Eiríksson, Kaffikannan
Áttan (besti leikmaður): Andri Már Jóhannesson, Injury list
Sigurvegarar í flokki 13 ára og yngri kvenna: 4 Queens
Sigurvegarar í flokki 13 ára og yngri karla: Þristarnir
Viðurkenningar fyrir U13 kvenna og U13 karla:
Peysan (flottasta liðið): 4 Queens
Gústinn (háttvísiverðlaun): Pookie Bears
Boston (flottustu tilþrif) Fabian Piotr Szewczyk, Nausta Army
Áttan (besti leikmaður, U13 kk): Kári Kolbeinsson, Þristarnir
Áttan (besti leikmaður, U13 kvk): Halldóra Tómasdóttir, 4 Queens
Mótshaldarar þakka öllum leikmönnum, þeim sem lögðu leið sína á völlinn, forsetahjónunum og fylgdarliði og sér í lagi sjálfboðaliðunum sem gera svona viðburði mögulega.
Með því að smella á tengilinn er að finna myndaalbúm með enn fleiri skemmtilegum myndum frá meistara Palla: