Eftir slakari byrjun á tímabilinu en margir höfðu spáð Haukunum, þá hafa þeir verið á góðu róli undanfarið og var sigur þeirra á ÍR á Ásvöllum sá þriðji í röð í deildinni. Sem stendur sitja þeir í 4. sæti hennar með 20 stig líkt og Þór Þorlákshöfn sem vermir 5. sætið og Njarðvík sem er í 6. sæti en á leik til góða þar sem fresta var leik þeirra á móti Tindastóli vegna veðurs.
ÍR-ingar byrjuðu betur í kvöld og voru þeir að hitta úr öllu í fyrri hálfleik. Með bættum varnarleik náðu Haukarnir að snúa spilinu við í þriðja leikhluta að sögn Ívars Ásgrímssonar, þjálfara Hauka en í kjölfar skiptinga undir lok leikhlutans hleyptu þeir ÍR-ingum aftur inn í leikinn.