Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til ökumanna sem eiga leið um vesturbæ Reykjavíkur að virða rétt gangandi vegfarenda og leggja ekki á gangstéttir eða á göngustígum. Þeir ökumenn sem leggji ólöglega megi búast við sektum.
Lögreglan nefnir þetta sérstaklega vegna þess að annað kvöld mætast KR og Keflavík í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta en leikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Frostaskjól og hefst klukkan 19.15.
Lögreglan segir að búast megi við fjölmenni á leikinn og því sé hætta á að vandræði skapist og að lítið verði um bílastæði við íþróttahúsið. Stuðningsmönnum liðanna er því bent á þann möguleika að finna sér bílastæði annars staðar í hverfinu og taka á sig stutta gönguferð að íþróttahúsinu.
Þess má svo geta að á morgun hefst forsala aðgöngumiða á leikinn í hádeginu í DHL-Höllinni.
KR-Keflavík
Oddaleikur í undanúrslitum
Kl. 19:15 fimmtudagskvöldið 7. apríl