spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaValur semur við Fatimu, Bertu og Ingibjörgu

Valur semur við Fatimu, Bertu og Ingibjörgu

Valur hefur gert samning við þrjá af yngri og efnilegri leikmönnum félagsins.

Allar eru að upplagi úr Val og hafa leikið með yngri flokkum félagsins, en þær eru Berta María Þorkelsdóttir, Fatima Rós Joof og Ingibjörg Sigrún Svaladóttir. Allar eru þær 16 ára og hafa verið að æfa með U16 í allt sumar, Berta María og Ingibjörg eru í lokahóp og fara á Evrópumót til Tyrklands í næstu viku.

Fréttir
- Auglýsing -