21:15
{mosimage}
Tveir leikir fóru fram í Poweradebikar kvenna í kvöld þar sem Valur og Grindavík tryggðu sig áfram í næstu umferð. Valur lagði Hamar í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda 63-55 og Grindavík vann Fjölni 69-51 í Röstinni í Grindavík.
Fyrstu umferð Poweradebikarsins lýkur annað kvöld þegar Keflavík tekur á móti nýliðum KR í Sláturhúsinu í Keflavík kl. 19:15.