spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaValur náði í sigur á Meistaravöllum

Valur náði í sigur á Meistaravöllum

Bónus deildar lið Vals hafði betur gegn fyrstu deildar liði KR á Meistaravöllum á dögunum í æfingaleik, 60-85, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir upphaf deildarkeppninnar sem er um næstu mánaðarmót. Samkvæmt heimildum Körfunnar var nokkuð vel mætt á leikinn í Vesturbænum, en gestirnir úr Val leiddu frá byrjun til enda þrátt fyrir að heimakonur hafi átt fjölmarga góða spretti í leiknum.

Stigahæst fyrir KR í leiknum var Perla Jóhannsdóttir með 17 stig. Henni næst var Markyia McCormick með 15 stig.

Fyrir Val var það fyrrum KR-ingurinn Ásta Júlía Grímsdóttir sem var stigahæst með 18 stig og Alyssa Cerino bætti við 15 stigum.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -