spot_img
HomeFréttirValur í Iceland Expressdeild kvenna

Valur í Iceland Expressdeild kvenna

22:00

{mosimage}

Það er nú orðið ljóst að aðeins munu leika sjö lið í Iceland Expressdeild kvenna í vetur. Fyrr í sumar ákváð Breiðablik að senda ekki lið til þátttöku í deildinni og var því kannaður hugur allra liða sem munu taka þátt í 1. deildinni í vetur.

Það var ekki fyrr en komið var að nýliðum 1. deildarinnar sem nýtt lið í Iceland Expressdeildina fannst. Valsstúlkur munu taka sæti Breiðabliks en Valur hefur ekki sent kvennalið til þátttöku síðan veturinn 1995-96. Þetta þýddi þó það að ÍS mun ekki senda lið því allir leikmenn ÍS gengu til liðs við Val.

Það verða því einungis sjö lið í deildinni og leikin fjórfjöld umferð, tuttugu og fjórir leikir á lið en keppni hefst 13. október með þremur leikjum.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -