Í kvöld hófust 16 liða úrslitin í Poweradebikarkeppni karla. Valsmenn tóku þá á móti KR b í Vodafonehöllinni og komust örugglega áfram í næstu umferð, 8-liða úrslit.
Lokatölur í kvöld voru 94-53 Valsmönnum í vil þar sem Ragnar Gylfason var stigahæstur heimamanna með 24 stig, 4 fráköst og 8 stoðsendingar. Þá bætti Chris Woods við 19 stigum og 4 fráköstum.
Hjá KR b var Guðmundur Þór Magnússon með 12 stig og 4 fráköst og Hjalti Kristinsson gerði 9 stig.
Valsmenn eru því komnir í 8-liða úrslit en 16-liða úrslitunum lýkur svo á mánudag.
Mynd úr safni/ Ragnar Gylfason var stigahæstur Valsmanna í kvöld.