16. umferð Bónusdeildar karla hófst í kvöld, meðal annars með leik Vals og Njarðvíkur í N1 höllinni.
Fyrir þennan leik voru heimamenn í sjötta sæti með 14 stig, hafa verið að finna sitt gamla form. Gestirnir eru í þriðja sæti með 20 stig og hafa litið virkilega vel út í vetur. Það mátti því búast við hörkuleik tveggja góðra liða. Bæði lið voru án sterkra leikmanna, hjá Val var Badmus ekki með og hjá Njarðvík var það Lautier. Það var ekki beint veriðað hugsa um fjölmiðlamenn, því beint fyrir framan blaðamannastúkuna voru risastórir ljóskastarar. En leikurinn sjálfur var jafn og skemmtilegur nánast allan leikinn, Njarðvík leiddu í 3 leikhluta en Valur tók þetta í lokin 88-76.
Leikurinn byrjaði nokkkuð vel sóknarlega fyrir bæði lið, Njarðvíkingar hittu úr öllum sínu þriggja stiga skotum og náðu Valsmenn engan vegin að stöðva það, enda nánast allir að hitta. Leikhlutinn byrjaði jafnt, en síðan sigu gestirnir fram úr og leiddu eftir fyrsta leikhluta, þrátt fyrir smá endurkomu hjá Val, 25-28.
Adam núllaði síðan forystuna í fyrstu sókn annars leikhluta með góðum þristi. En Shabazz reyndar svaraði í sömu mynt í næstu sókn. Liðin skiptust á að skora, en Njarðvík með kannski örlítið frumkvæði. Brynjar Kári Gunnarsson kom með fína spretti. Það var töluvert minna skorað í þessum leikhluta, betri varnir hjá báðum liðum og svo virtist Valsmönnum sérstaklega eiga erfitt með að setja niður körfu. Njarðvík leiddi í hálfleik 41-48.
Seinni hálfleikur byrjaði mjög jafn, Valsmenn ætluðu greinilega að jafna leikinn og það strax, en gestirnir voru auðvitað ekki á sama máli. Njarðvík hélt forystunni en Valur tókst að samt á það undir lokin og var forystan aðeins þrjú stig fyrir Njarðvík, 62-65.
Joshua byrjaði síðan á að jafna og í þetta sinn svöruðu gestirnir ekki strax heldur náðu þeir boltanum og Ástþór henti í þrist og svo bætti Joshua tveimur við og Valur skyndilega kominn 5 stiga forystu. Njarðvík skoraði sína fyrstu körfu í 4. leikhluta þegar 3 mínútur voru liðnar af honum, nú voru gestirnir skyndilega farnir að elta. Það má segja að Njarðvík hafi kastað inn hvíta handklæðinu þegar Shabazz fékk á sit tæknivillu undir lokin. Valsmenn sigldu þessu heim 88-76.
Hjá Valsmönnum Kristinn Páls góður með 20 stig og 12 fráköst, Joshua kom næstur með 18 stig og Kári með 17 stig. Hjá Njarðvík var Veigar Páll 18 stig, Milka var traustur með 16 stig og 10 fráköst, Shabazz kom svo með 16 stig líka
Næstu leikir þessara liða í Subway deildinni verða 7. febrúar hjá Valsmönnum þegar þeir taka á móti Hetti, degi fyrr fá Njarðvík KR í heimsókn.
Myndasafn (Gunnar Jónatans)