spot_img
HomeFréttirValencia tapaði og komnir í annað sætið

Valencia tapaði og komnir í annað sætið

Valencia fór illa að ráði sínu í gær þegar þeir töpuðu nokkuð óvænt á heimavelli gegn liði Estudiantes.  Leikurinn endaði 62:68 gestina í vil en gestirnir leiddu með einu stigi í hálfleik.  Jón Arnór Stefánsson spilaði 18 mínútur í leiknum og skoraði 6 stig og sendi 1 stoðsendingu.  Þar með eru Valencia endanlega komnir í annað sætið en þeir hafa deilt efsta sætinu með liði Barcelona síðustu vikur.   Í þriðja sæti er svo Real Madrid sem tapaði einnig um helgina gegn liði Tenerife.  Valencia heimsækir lið Rio Natura Monbus heim í næstu umferð. 

Staðan í deildinni. 

Fréttir
- Auglýsing -