Jón Arnór og Valencia BC sigruðu Bilbao Basket örugglega í úrslitum undirbúningsmótsins fyrir ACB deildina í Burgos í gær, 85-54.
Jón Arnór lék í 11 mínútur í leiknum en tókst ekki að komast á blað, en var þó með eina stoðsendingu. Bojan Dubljevic var stigahæstur í liði Valencia með 22 stig en hjá Bilbao var það Alex Mumbru sem leiddi sína menn með 10 stig.