Valencia rígheldur í toppsæti sitt í ACB deildinni eftir sigur á Fuenlabrada í æsispennandi leik. Valencia hóf leikinn með 18 stigum gegn 15 í fyrsta hluta en svo skiptust liðin á að halda forystunni þar til Valencia náði yfirhöndinni í þeim þriðja. Valencia héldu svo út fjórða hlutann og uppskáru mikilvægan sigur á útivelli gegn liðinu í 6. sæti deildarinnar.
Jón Arnór náði ekki að komast á blað eftir 14 mínútna leik en tók engu að síður 2 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.