Selfoss hefur samið við þær Önnu Katrínu Víðisdóttur og Valdísi Unu Guðmannsdóttur fyrir komandi tímabil í fyrstu deild kvenna.
Valdís Una er 19 ára bakvörður sem að upplagi er úr Hrunamönnum, en hefur leikið með Hamar/Þór síðustu ár. Samhliða því hefur hún verið þjálfari hjá Selfoss. Anna Katrín er 18 ára bakvörður sem einnig er að upplagi úr Hrunamönnum, en hefur leikið fyrir Hamar/Þór á síðustu árum. Báðar hafa þær verið viðloðandi yngri landslið Íslands á síðustu árum.