18:51
{mosimage}
Shameka Christon leikmaður New York Liberty
Úrslitakeppninn í WNBA er í fullum gangi og á Vesturströndinni eru úrslitin að hefjast. Þar eigast við San Antonio Stars og Phoenix Mercury. Á Austurströndinni hefur Indiana Fever tryggt sér sæti í úrslitunum en staðan í einvígi New York Liberty og Detroit Shock er 1-1 og fer oddaleikurinn fram í nótt í Detroit.
San Antonio sigraði Sacramento Monarchs í undanúrslitum 2-1 á meðan Phoenix vann Seattle Storm 2-0. Indiana Fever vann Connecticut Sun 2-1 á Austurströndinni.
Mynd: www.wnba.com