Tindastóll og Keflavík mættust í fjórða leik einvígis liðanna í kvöld og skemmst frá því að segja þá rótburstuðu heimamenn á Sauðárkróki gesti sína með 98 stigum gegn 68. Tindastóll réðu ferðinni allt frá fystu mínútu leiksins til þeirrar síðustu og sigurinn vægast sagt verðskuldaður. Keflvíkingar kannski yfirspenntir og voru langt frá sínu besta. Meira um leikinn síðar í kvöld. Tindastóll þar með búnir að tryggja sig í 4 liða úrslit en 5. árið í röð eru Keflvíkingar slegnir út í 8 liða úrslitum.