Fjórir leikir fóru fram í Dominos deild karla í kvöld. Í Þorlákshöfn sigruðu heimamenn í Þór lið Vals, í Smáranum lögðu Íslandsmeistarar KR heimamenn í Breiðablik og í Borgarnesi bar Njarðvík sigurorð af Skallagrím.
Toppslagur Keflavíkur og Tindastóls hófst seinn og er hann enn í gangi.
Þá var einn leikur í 1. deild karla, þar sem að Þór vann Hött á Egilsstöðum.
Úrslit kvöldsins:
Dominos deild karla:
Þór 114 – 98 Valur
Breiðablik 76 – 99 KR
Skallagrímur 82 – 89 Njarðvík
Keflavík Tindastóll – Leikur hófst kl. 20:15
1. deild karla:
Höttur 98 – 111 Þór