Veislan er hafin. Dominos deild kvenna fór af stað í kvöld með fjórum leikjum. Það er óhætt að segja að þetta hafi farið af stað með hvelli.
Gríðarlega óvænt úrslit voru í Schenkerhöllinni þar sem Íslandsmeistarar Hauka töpuðu fyrir nýliðunum sem spáð var neðsta sæti af forráðamönnum félaganna.
Stjarnan vann líka góðan sigur á Keflavík í Keflavík.
Úrslit kvöldsins:
Dominos deild kvenna:
Haukar 59-67 KR
Valur 71-51 Skallagrímur
Breiðablik 80-93 Snæfell
Keflavík 71-79 Stjarnan
3. deild karla:
Kormákur 51-107 Haukar B