Icelandic Glacial æfingamótið árlega rúllaði af stað í Þorlákshöfn í kvöld með tveimur leikjum.
Í fyrri leik kvöldsins hafði Njarðvík betur gegn heimamönnum í Þór eftir framlengdan leik, 108-111. Atkvæðamestur fyrir Njarðvík í leiknum var Oddur Rúnar Kristjánsson með 29 stig og 4 fráköst. Fyrir heimamenn var það Josep Perez sem dró vagninn með 36 stigum og 9 stoðsendingum.
Í seinni leik kvöldsins lagði Breiðablik Íslandsmeistara Vals nokkuð örugglega, 91-66. Atkvæðamestur Blika í leiknum var Julio De Assis með 18 stig og 14 fráköst. Fyrir Val var Aron Booker bestur með 20 stig og 7 fráköst.
Mótið mun svo halda áfram komandi sunnudag 18. september, en þá mætir Njarðvík liði Íslandsmeistara Vals og heimamenn í Þór og Breiðablik eigast við.