Fjórir leikir voru í kvöld í elleftu umferð Dominos deildar karla.
Keflavík lagði ÍR í Blue Höllinni, Stjarnan vann Fjölni í Mathús Garðabæjar Höllinni, Tindastóll hafði betur gegn Grindavík í Síkinu og Njarðvík bar sigurorð af Þór í Njarðtaks Gryfjunni.
Síðasta leik umferðarinnar var frestað fram yfir áramót, en KR-ingar komust ekki norður á Akureyri vegna veðurs.
Þá lagði Höttur heimamenn í Breiðablik í fyrstu deild karla og tyllir sér í efsta sæti deildarinnar yfir hátíðarnar.
Úrslit kvöldsins
Dominos deild karla:
Keflavík 93 – 70 ÍR
Stjarnan 95 – 88 Fjölnir
Tindastóll 106 – 88 Grindavík
Njarðvík 101 – 77 Þór
Þór Akureyri KR – Frestað
Fyrsta deild karla:
Breiðablik 75 – 78 Höttur