Einn leikur fórr fram í Subway deild kvenna í kvöld.
Íslandsmeistarar Vals lögðu nýliða Grindavíkur í HS Orku Höllinni, 58-73.
Eftir leikinn er Valur í 3. sæti deildarinnar með 16 stig á meðan að Grindavík er í 6. sætinu með 6 stig.
Tvisvar áður höfðu liðin mæst áður á þessu tímabili og hafði Valur unnið báða þá leiki nokkuð örugglega. Með 25 stigum þann 6. október í Grindavík, en 34 stigum þann 21. nóvember heima í Origo Höllinni.
Leikur dagsins
Subway deild kvenna
Grindavík 58 – 73 Valur