Tveir leikir voru á dagskrá Bónus deildar karla í kvöld.
Stjarnan lagði Íslandsmeistara Vals í Ásgarði og í Smáranum hafði Grindavík betur gegn nýliðum ÍR. Um var að ræða tvo síðustu leiki fyrstu umferðar, en önnur umferð deildarinnar mun fara fram á fimmtudegi og laugardegi næstu viku.
Úrslit kvöldsins
Bónus deild karla
Stjarnan 95 – 81 Valur
Grindavík 100 – 81 ÍR