Fimm leikir fóru fram í 20. umferð Dominos deildar karla í kvöld.
Keflavík lagði heimamenn í Þór í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn, ÍR vann Njarðvík í framlengdum leik í Ljónagryfjunni, Tindastóll sigraði Breiðablik í Síkinu og Grindavík bar sigurorð af Haukum í DB Schenker höllinni í Hafnarfirði.
Leikur Vals og Skallagríms hófst ekki fyrr en kl. 20:00, en hann gengur enn í Origo höllinni að Hlíðarenda.
Síðasti leikur umferðarinnar er svo leikur Íslandsmeistara KR og bikarmeistara Stjörnunnar, en hann fer fram í DHL höllinni annað kvöld.
Leikir dagsins
Dominos deild karla:
Þór 99- 103 Keflavík
Njarðvík 95 – 98 ÍR
Tindastóll 94 – 70 Breiðablik
Haukar 73 – 83 Grindavík
Valur – Skallagrímur Leikur hófst 20:00, enn í gangi