Haukar vörðu heimavöll sinn nú í kvöld með sannfærandi sigri gegn liði Tindastóls í fyrsta leik einvígi liðana í undan úrslitum. Haukar sigruðu leikinn með 73 stigum gegn 61 stigi gestana úr Skagafirðinum. Brandon Mobley fór fyrir Haukum og setti niður 17 stig en hjá Tindastól var það Helgi Rafn Viggósson nokkuð óvænt stigahæstur Tindastóls með 18 stig. Næsti leikur er á miðvikudag í Síki þeirra Tindastólsmanna.