Fjórir leikir fóru fram í sextán liða úrslitum VÍS bikarkeppni kvenna í dag.
Snæfell lagði KR í Stykkishólmi, Breiðablik vann Tindastól í Smáranum, ÍR hafði betur gegn Aþenu í Hellinum og í Ólafssal unnu heimakonur í Haukum lið Grindavíkur.
Liðin sem verða í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslitunum verða því Snæfell, Breiðablik, ÍR, Haukar, Njarðvík, Stjarnan, Hamar/Þór og Fjölnir.
Úrslit dagsins
VÍS bikar kvenna
Snæfell 79 – 73 KR
Breiðablik 111 – 53 Tindastóll
ÍR 74 – 65 Aþena
Haukar 77 – 59 Grindavík