Hamar hefur samið við Jose Medina fyrir komandi tímabil í fyrstu deild karla.
Jose er spænskur bakvörður sem síðast lék fyrir Þór í Þorlákshöfn í fyrstu deildinni. Áður en hann fór þangað á síðasta tímabili hafði hann verið á mála hjá Hamri, en áður hefur hann einnig leikið fyrir Hauka í fyrstu deildinni.