Ívar Ásgrímsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennafélags Álftaness og var hann valinn úr hópi umsækjenda, en hann tekur við starfinu af Björgvini Jùnìussyni.
Ívar er reynslumikill og þekkir rekstrarumhverfi íþróttafélaga í þaula og reynsla hans sem fyrrum yfirþjálfari og íþróttastjóri mun samkvæmt tilkynningu félagsins nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu þess til næstu ára.
Frá árinu 2019 starfaði Ívar sem íþróttastjóri, yfirþjálfari og þjálfari hjá Breiðablik í körfubolta, árin 2011-2019 þjálfaði hann karlalið Hauka í körfubolta ásamt því að hafa þjálfað A-landslið kvenna árin 2004 til 2005 og svo aftur frá 2014 til 2018.
„Álftanes er félag sem er að stækka mikið, eins og byggð í kring þar sem íbúafjöldi ríkur upp. Gríðarlega mikilvægir tímar eru framundan hjá félaginu þar sem möguleikar á stækkun og eflingu deilda innan félagsins eru framundan.“