Hilmar Pétursson og Munster eru úr leik eftir 3-0 tap fyrir Trier í átta liða úrslitum Pro A deildarinnar í Þýskalandi, en þriðja og síðasta leiknum tapaði liðið í kvöld 88-75.
Hilmar lék tæpar 17 mínútur í leik kvöldsins og skilaði á þeim 11 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.