spot_img

Úr KR til Grindavíkur

Grindavík hefur samið við Odd Rúnar Kristjánsson um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bónusdeild karla. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Oddur Rúnar kemur til Grindavíkur frá nýliðum KR, en þar var hann hluti af liði sem tryggði sig beint upp í Bónusdeildina á síðustu leiktíð. Síðast lék hann í efstu deild fyrir Njarðvík tímabilið 2022-23.

Segja má að Oddur sé að snúa aftur til Grindavíkur, en hann var á mála hja þeim fyrir áratug, tímabilið 2014-15.

Mynd / Grindavík FB

Fréttir
- Auglýsing -