spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaÚr Garðabænum til Grindavíkur

Úr Garðabænum til Grindavíkur

Kat­arzyna Trzeciak hefur samið við Grindavík fyrir komandi tímabil í Bónus deild kvenna.

Kat­arzyna er 32 ára pólskur bakvörður sem kemur til Grindavíkur frá Stjörnunni, en þar lék hún á síðustu leiktíð. Með Stjörnunni fór hún alla leið í úrslit bikarkeppninnar og í undanúrslit úrslitakeppninnar og skilaði hún 16 stigum, 6 fráköstum og 2 stolnum boltum að meðaltali í leik á leiktíðinni.

Fréttir
- Auglýsing -