Haukar hafa samið við Rebekku Rut Hjálmarsdóttur fyrir komandi átök í Subway deild kvenna.
Rebekka er 19 ára bakvörður sem er að upplagi úr Grindavík en kemur til Hauka frá ÍR. Á síðustu leiktíð með ÍR í Subwaydeildinni skilaði Rebekka 6 stigum, 4 frákastum og stoðsendingu að meðaltali í leik.